Fréttir
Stórsigur Vinstri grænna
Nú er ljóst að Vinstri græn eru sigurvegarar alþingiskosninganna, juku fylgi sitt um tæp 6 prósentustig og nærri tvöfölduðu þingflokkinn. Nýr þingflokkur kom saman í dag til fyrsta fundar. Við þökkum allan góðan stuðning og þann skýra vilja kjósenda að Vinstri græn verði breytiafl í samfélaginu í átt til umhverfisvænna samfélagi, aukins jafnréttis og velferðar. Þá ber að þakka öllum þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg í baráttunni og sáu til þess að málefni okkar bárust til kjósenda.

