Herkveðja á Suðurnesjum
Herkveðjuhátíð á Ránni, Keflavík,
laugardaginn 22. apríl kl. 13 - 17
Hátíð með léttu yfirbragði en alvarlegum undirtóni.
Litið um öxl og horft fram á veginn. Þúsund blóm blómstra!
? Sambúð hers og þjóðar í hálfa öld ? hvers er að minnast?
? Fögnuður eða söknuður þegar herinn fer?
? Segjum upp herstöðvasamningnum og NATO-samningunum?
? Reynum við að finna annan her í staðinn?
? Hvernig varnir þurfum við ? og gegn hverjum?
? Árið 1918 hétum við ævarandi hlutleysi. Á að endurreisa hlutleysið?
? Starfslokasamningar? Hvernig gegnur fólki að fá nýtt starf?
? Hvernig verður viðskilnaðurinn ? hreint land og fagurt land?
? Getum við rekið flugvöllinn ? og janvel nýtt hann betur?
? Hvað tekur við? Ný tækifæri?
Ávörp m.a.
? Katrín Jakobsdóttir, varaformaður VG, ávarpar samkomuna.
? Jóhann Geirdal, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ: Herinn fer, fögnum nýjum tækifærum
? Kristján Pálsson, sagnfræðinemi: Áhrifin voru líka jákvæð
? Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur: Orðið varnarlið
? Sveinn Rúnar Hauksson. Sögur úr hersetunni
? Einar Ólafsson, ritstjóri Friðarvefsins: Um alþjóðlega baráttu gegn herstöðvum.
List og menning m.a.
? Rúnar Júlíusson, sá eini og sanni, segir frá kynnum sínum af hernum í máli og tónum.
? Sóleyjarkvæði eftir Jóhannes úr Kötlum og tónlist Péturs Pálssonar var frumflutt 1965. Þrír upphaflegu flytjendanna syngja brot úr verkinu.
? Hljómsveitir skipaðar ungu fólki af Suðurnesjum og úr Reykjavík: Tokyo Megaplex, Æla, Hellvar, Kapteinn Hafsteinn og Kira Kira.
Kynnir er hinn bráðsnjalli Stefán Pálsson, sagnfræðingur með meiru.
Til sölu:
Veitingar á vegum hússins. Happdrættismiðar, hljómplötur, efni þeirra sem koma fram.
Vinstrihreyfingin grænt framboð á Suðurnesjum
Nánari upplýsingar:
Þorvaldur Örn Árnason valdurorn@ismennt.is s.895 6841
Marta Guðrún Jóhannesdóttir martag@fss.is s. 867 5986

