Suss! Mamma er að tala um fullorðins mál - hópur menntaskólanema láta í sér heyra.
Það undrar eflaust fáa hve vinsælt yrkisefni náttúran er mörgum mönnum. Þessi stórbrotna smíði reynist flestum bæði augnayndi og órjúfanlegur hluti uppruna þeirra og daglegs lífs. Maðurinn má ekki álíta hana sjálfsagða eign sína. Mistök í umgengni við hana geta reynst honum dýrkeypt og oft er betra að huga að framtíðinni við ákvarðanatökur en að gleyma sér í stundargræðginni. Það sem virðist gott getur snúist upp í andhverfu sína þegar til lengri tíma er litið.
Hið svokallaða lífsgæðakapphlaup mun varla færa okkur þau lífsgæði sem við í raun viljum og þurfum til að njóta lífsins. Ef við göngum of langt munum við á endanum sjá að okkur, og á þeirri stundu mun það sem okkur áður þótti sjálfsagt ekki vera lengur til staðar. Þá fyrst munum við átta okkur og reyna að ganga „gamla veginn“ veginn til baka. Hvort við komum að tómu „húsi“ þegar á enda er komið getur enginn svarað, en viljum við hætta á það?
------
Eftir miklar umræður höfum við, hópur ungra menntaskólanema, ákveðið að láta í okkur heyra. Þær ákvarðanir sem teknar verða á komandi kjörtímabili munu hafa afdrifarík áhrif á framtíð okkar. Vafalaust er ágætt að fljóta í gegn um lífið áhyggjulaus og leiða hugann aldrei að þeim möguleika hvort svo verði, en á endanum mun einhver þurfa að taka ábyrgð á gjörðum okkar. Ef ekki við, hver þá?
Staða okkar er enn ekki svo vonlaus því margir eru meðvitaðir um aðsteðjandi ógnir og reyna að gera sitt til að hindra þessa þróun, vernda náttúruna og umhverfi okkar. Við þurfum þó öll að taka höndum saman og varðveita þessa dýrmætu eign. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur og því mikilvægt horfa fram í tímann áður en of seint er að líta um öxl. Sitjum ekki heima og fríum okkur allri ábyrgð. Kjósum menntað fólk með hugsjónir inn á þing en ekki atvinnu-pólitíkusa. Kjósum fólk sem treystandi er fyrir heimkynnum okkar. Kjósum fólk sem af atorku og einhug berst fyrir framtíð okkar og verndar um leið landslag komandi kynslóða.
Þurfum við ekki nýja stjórn?
Okkur er ekki sama.
Höfundar greinar eru: Hera Hilmarsdóttir, Ásdís Ólafsdóttir, Birna Dís Eiðsdóttir, Sigrún Eyfjörð, Gunnur Martinsdóttir Schluter og Dóra Björt Guðjónsdóttir.

