Lengri opnunartímar í kosningamiðstöð VG á Akureyri
Kosningamiðstöð Vinstri grænna á Akureyri er nú opin alla virka daga frá klukkan 10 til 19. Þar er hægt að setjast niður fá te og kaffi og ræða málin. Einnig er opið á laugardögum frá 11 til 16. Starfsmaður kosningamiðstöðvarinnar er Ólafur Þ. Jónsson og kosningastjóri Hlynur Hallsson. Frambjóðendur eru einnig á staðnum og hægt er að fá þau til að koma á vinnsutaðafundi með því að senda tölvupóst á vgakureyri@gmx.net eða hringja í 4623463 eða 6594744. Vefsíða Vinstri grænna er www.xv.is
Kosningahappdrætti Vinstri grænna vegna sveitarstjórnarkosninga 2006 hefur verið hleypt af stokkunum. Happdrættið er sameiginlegt fyrir landið allt - og miðin. Happdrættið er hið glæsilegasta í alla staði. Vinstri grænn andi hoppar af gleði og býður upp á frábæra vinninga. Í boði eru úttektarvinningar og ferðavinningar innanlands sem utan. Sérhannaðar ferðir með sagnamönnum vítt og breytt um landið. Eðalveitingar eru víða í boði og margháttaðir lífslistarvinningar gefa fyrirheit um andlegt og líkamlegt dekur.
Rúsínurnar í pylsuendanum eru frambjóðendavinningarnir sem í sjálfu sér eru ómetanlegir. Hver vill ekki sigla um sundin blá með Svandísi, eiga sögustund með Elíasi Mar á Hótel Borg, spjalla við Baldvin um sögu Akureyrar yfir málsverði á Flugkaffinu, fá nudd hjá Dillu eða ferð með Kristínu Sigfúsdóttur? Og er nú fátt eitt nefnt.
Miðarnir fást í kosningamiðstöðvum VG og kostar miðinn einungis 1.000 kr.

