Fréttir

Snúum við blaðinu - Á laugardag eru 4 ástæður til að kjósa: skipta um ríkisstjórn:

9.5.2007

Vinstrihreyfingin – grænt framboð kynnti í dag á blaðamannafundi hvernig nauðsynlegt er að snúa við blaðinu í íslenskum stjórnmálum næsta laugardag. Hið stóra viðfangsefni er að innleiða nýja og betri sýn í lýðræðis- og samfélagsmálum, tryggja verður græna framtíð og kvenfrelsi.


1vg-bladamannafundurLýðræði?

  • 2 menn settu Íslendinga á lista þjóða sem studdu stríðið í Írak. 35 komu í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um Kárahnjúkavirkjun.

  • Fjársterkir aðilar hafa eytt milljónatugum til að hlutast til um ákvarðanatöku sveitarfélaga í Hafnarfirði, Reyðarfirði og víðar.


Samfélag fyrir alla?

  • Einkavæðing heilbrigðisþjónustunnar er komin á dagskrá og unnið er að sölu Landsvirkjunar, og þar með orkuauðlinda þjóðarinnar.

  • 1. nóvember á þessu ári taka gildi lög þar sem einkaeignaréttur á vatni er festur í sessi og vatn gert að markaðsvöru.


Græn framtíð?

  • Álver verða reist við Húsavík og í Helguvík og virkjanir í Þjórsá og Skjálfandafljóti.

  • Losun gróðurhúsalofttegunda hefur aukist hraðar hér en í nokkru öðru landi í Evrópu.


Kvenfrelsi?

  • Kynbundinn launamunur er 16% og hefur ekki minnkað um eitt einasta prósent.

  • 23 af 63 þingmönnum eru konur, 4 af 12 ráðherrum.


Allt annað líf - Á laugardag eru 4 ástæður til að kjósa Vinstri græn:


1vg-bladamannafundur3Lýðræði!

  • Tryggjum að tiltekinn hluti þjóðarinnar geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um umdeild mál.

  • Eflum grasrótarsamtök og tryggjum aðkomu almennings og frjálsra félagasamtaka að lýðræðislegri ákvarðanatöku.


Samfélag fyrir alla!

  • Burt með komugjöld og sjúklingaskatta. Tryggjum almenningi lægra orkuverð og nýtum hlut ríkisins í Landsvirkjun í þágu skynsamlegrar orkunýtingar.

  • Afturköllum lög um einkaeign á vatni og tryggjum að aðgangur að vatni verði áfram hluti af grunnréttindum okkar, líkt og andrúmsloftið.


Græn framtíð!

  • Stöðvum frekari stóriðjuframkvæmdir og ákveðum hvaða svæði við ætlum að vernda til framtíðar.

  • Stofnum loftslagsráð sem vinnur markvisst gegn losun gróðurhúsalofttegunda, m.a. með vistvænum samgöngum og fræðslu um umhverfismál.


Kvenfrelsi!

  • Afnemum launaleynd strax og eflum Jafnréttisstofu.

  • Vinnum að því að tryggja a.m.k. 40% hlut kvenna á þingi og í sveitarstjórnum, t.d. með því að hvetja til að fléttulistum verði beitt.

1vg-bladamannafundur11vg-bladamannafundur21vg-bladamannafundur4

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica