Fréttir

Laugardagsfundur um jafnrétti og femínisma

26.4.2006

Vinstrihreyfingin grænt framboð á Akureyri efnir til laugardagsfundar um jafnrétti og femínisma laugardaginn 29. apríl 2006, klukkan 11-12.30. Fundurinn verður í kosningamiðstöð Vinstri grænna, Hafnarstræti 98 á Akureyri.

Velt verður upp spurningum eins og:

- Hver er staða jafnréttismála á Akureyri?

- Af hverju þurfa konur að taka þátt í stjórnmálum?

- Hvernig er hægt að samþætta kynja- og jafnréttissjónarmið í starfi sveitarfélaga?

- Hefur hreyfing ungra femínista skilað árangri í jafnréttisbaráttunni?

- Hvernig er unnið að jafnréttismálum í stjórnsýslunni?

- Hvað kemur jafnrétti körlum við?

Gestir fundarins eru Valgerður H. Bjarnadóttir bæjarfulltrúi Vinstri grænna og Katrín Ríkarðsdóttir jafnréttisfulltrúi Akureyrarbæjar.

Fundarstjórar eru þau Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðingur og Baldvin Esra Einarsson heimspekingur og formaður nemendafélags HA en þau skipa sæti á framboðslista Vinstri grænna fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri. Eftir stuttar framsögur verða umræður og allir eru velkomnir .

Vinstri græn ? hreinar línur

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica