Fréttir

Fréttir frá NV-kjördæmi - Opnun kosningaskrifstofu á Patreksfirði

8.5.2007

Opnunin tókst með afbrigðum vel, fullt var af fólki og reyndar komu svo margir að við urðum að sækja meira af húsgögnum svo allir hefðu sæti. Jón og Inga héldu stutt ávörp við góðar undirtektir og greinilega var mikill hugur í mönnum og konum að koma Ingibjörgu Ingu á þing. Ungur maður frá Tálknafirði var með stutt en verulega skemmtilegt uppistand. Frábærar kaffiveitingar gerðu góðan dag enn betri og má segja að stanslaus ,,traffík" hafi verið frá opnun allt fram að lokun skrifstofunnar.

Með baráttukveðjum úr villta vestrinu,
Gústaf Gústafsson, Patreksfirði.

kosningaskrifstofuopnun001

kosningaskrifstofuopnun004kosningaskrifstofuopnun006kosningaskrifstofuopnun007kosningaskrifstofuopnun008kosningaskrifstofuopnun009

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica