VG fagnar ályktunum Landverndar
Vinstrihreyfingin – grænt framboð fagnar ályktunum aðalfundar Landverndar, sem haldinn var á Sólheimum í Grímsnesi 5. maí sl. Sú áhersla sem fram kemur í ályktununum á sjálfbæra þróun er í góðum samhljómi við stefnu Vinstri grænna í umhverfismálum, sem lýst er ítarlega í nýútkomnu riti flokksins Græn framtíð. Landvernd hefur, eins og mörg önnur félagasamtök, gegn t veigamiklu hlutverki í stefnumótun og fræðslu í málefnum er varða landnotkun, auðlindir, náttúru og umhverfi. Þá þekkingu, framsýni og reynslu sem er að finna innan Landverndar verða stjórnvöld að nýta í þágu umhverfisins. Slíkt má t.d. gera með því að leiða í lög allar þrjár stoðir Árósasamningsins, sem tryggja frjálsum félagasamtökum og almenningi aðild að ákvörðunum er varða umhverfi og náttúru og réttláta málsmeðferð í slíkum málum.
Í ályktunum aðalfundarins kemur meðal annars fram að gera verði greinarmun á almennum vegum og ferðamannavegum við uppbyggingu vega um óbyggð svæði og val á staðsetningu. Bættar samgöngur á Vestfjörðum verði að vera á forsendum umhverfisins og er þar bent á jarðgöng sem mögulega lausn til að auka umferðaröryggi, stytta vegalengdir og koma í veg fyrir óþarft umhverfisrask. Landvernd kallar eftir ráðstöfunum til að koma í veg fyrir og bregðast við mengunarslysum á sjó og bendir í því sambandi á að skilgreina þurfi siglingaleiðir fyrir stór skipaumferð og að Íslendingar þurfi að búa yfir dráttarskipi í neyðartilvikum. Lagt er til að sveitastjórnir á höfuðborgarsvæðinu verndi náttúrufarsleg verðmæti og að svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins fái aukið vægi. Þá er lagt til að allri uppbyggingu stóriðju verði frestað a.m.k. þangað til 2. áfangi rammaáætlunar verði tilbúinn. Landvernd bendir í ályktunum sínum á að vernda beri miðhálendi Íslands þar til heildstætt landsskipulag liggi fyrir, skipulag sem unnið yrði á forsendum sjálfbærar þróunar. Sömuleiðis þurfi að hefja grunn- og yfirlitsrannsóknir á náttúrufari Íslands sem skili þekkingar- og upplýsingagrunni sem nýst geti við ákvarðanatöku stjórnvalda um náttúruvernd, nýtingu og verndun náttúruauðlinda.
Þessar ályktanir eru framsýnar og í góðum takti við umhverfis- og náttúruverndar baráttu Vinstri grænna síðastliðin átta ár innan þings sem utan.

