Ung vinstri græn grilla
Ungliðadagur ungra vinstri grænna á Akureyri verður á föstudaginn 28. apríl kl 16:00 fyrir utan kosningamiðstöði Vinstri grænna í göngugötunni (Hafnarstræti 98). Við munum grilla pylsur ofan í sársoltinn lýðinn og komandi verðbólgubál verður rætt í þaula. Óáfengir drykkir verða í boði og glensið í fyrirrúmi. Allir sem staðsettir eru á Akureyri á þessum tíma eru hvattir til að mæta enda er spáð bongóblíðu, sól og hita.
Til sölu verða stuttermabolir.
Fyrir hönd stjórnar UVGA
Baldvin Esra Einarsson
Formaður UVGA

