Opnun kosningaskrifstofu og menningarveisla í Hveragerði
Opnun kosningarskrifstofu VG og óháðra og kynning á framboði verður á Hótel Ljósbrá laugardaginn 29, apríl næstkomandi kl. 14:00-16:00. Fjölskylduskemmtun með pólitísku ívafi. Frambjóðendur flytja ræður ásamt Steingrími J. Sigfússyni formanni VG og Katrínu Jakobsdóttur varaformanni VG. Sérstakur gestur er Magnús Þór Sigmundsson og mun Ingó töframaður einnig sýna töfrabrögð fyrir allar kynslóðir. Frambjóðendur grilla pylsur fyrir gesti og gangandi og boðið verður upp á kaffi, meðlæti og ís handa krökkunum.
Vinstri hreyfingin grænt framboð í Hveragerði efnir síðan til allsherjar menningar- og tónlistarveislu um kvöldið. Fram koma rokkhljómsveitin Wulfgang sem setið hefur í fyrsta sæti x listans með lagið Machinery, söngvaskáldið Lay Low sem getið hefur sér gott orð sem allra besti trúbador Íslands og Helgi Valur, eini trúbadorrappari alheimsins. Veislan hefst kl. 21:00 og ætti enginn unnandi tónlistar eða menningar að láta sig vanta.
Vinstri-græn í Hveragerði og Ölfusi

