Utankjörfundur í fullum gangi

Kosning utankjörfundar fer fram hjá sýslumönnum, hjá hreppstjórum, í skipum, á sjúkrahúsum, í fangelsum, á dvalar- og vistheimilum og í heimahúsi. Erlendis er kosið hjá sendiráðum og kjörræðismönnum.
Kjósandi stimplar eða ritar á kjörseðilinn bókstaf þess lista sem hann vill kjósa. Listabókstafur Vinstri grænna um land allt er V. Á það skal bent, að nauðsynlegt er að hafa með sér skilríki þegar kosið er.
Utankjörfundur í Reykjavík fer fram í Laugardalshöll kl. 10.00 – 22.00 alla daga.
Kjósandi sem greiðir atkvæði utan þess kjördæmis sem hann er á kjörskrá skal samkvæmt lögum sjálfur annast og kosta sendingu atkvæðisbréfs síns. Við hjálpum gjarnan til við að koma atkvæðum til skila. Hægt er að hafa samband við okkur í síma 534-0996 eða koma til okkar á kosningaskrifstofuna á Grensásvegi 16A. Beinn sími hjá starfsmanni utankjörfundar 617-8321. Einnig má hringja á skrifstofuna til að fá upplýsingar um hvort að viðkomandi sé á kjörskrá. Frekari upplýsingar um utankjörfund er hægt að finna með því að smella hér.
Rafræn kjörskrá fyrir Reykjavíkurkjördæmin opnuð á vefnum
Opnað hefur verið fyrir rafrænan aðgang að kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur fyrir komandi alþingiskosningar. Þar geta kjósendur aflað sér upplýsinga um hvar þeir eigi að kjósa og í hvaða kjördeild. Smellið hér til að fá nánari upplýsingar. Á vefnum er hægt að fletta upp í kjörskrá Reykjavíkurkjördæma norður og suður.

