Fréttir
Laugardagsfundur VGR
NÁTTÚRUBORGIN REYKJAVÍK
Hér með er vakin athygli á laugardagsfundi VGR.
Hann verður haldinn að Suðurgötu 3 laugardaginn 29. apríl kl. 14:00 - 15:30
Yfirskriftin gefur til kynna að farið verði yfir málefnaáherslur Vinstri grænna í umhverfismálum í kosningabaráttunni og kafað dýpra ofan í einn þáttinn, þ.e. nauðsyn þess að standa vörð um Reykjanesfólkvang. Gestur fundarins verður Hrefna Sigurjónsdóttir formaður stjórnar Reykjanesfólkvangs. Hún mun fjalla um verndargildi svæðisins og þær ógnir sem að því stafa vegna virkjanaáforma.
Heitt verður á könnunni og eru félagar hvattir til að mæta og taka með sér gesti.
Næstu laugardaga verður svo fjallað um aðrar megináherslur framboðsins í kosningunum og verður það auglýst sérstaklega.

