1. maí-hátíð VG-Mos í kosningamiðstöðinni við Háholt
VG-Mos heldur 1. maíhátíð í kosningamiðstöðinni við Háholt
kl.14.30-16 mánudaginn 1. maí.
Dagskrá:
Kl. 14.45. Silja Hlín Guðbjörnsdóttir les úr endurminningum Aðalheiðar
Hólm sem var verkakona á Álafossi um 1930.
Kl. 15. Kvintet K.Tomm. leikur og syngur bítlalög í jazz-útsetningum.
Hljómsveitina skipa:
Guðmundur Steingrímsson "papa-jazz" á trommur.
Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari úr Gildrunni.
Birgir Bragason bassaleikari úr Milljónamæringunum.
Reynir Sigurðsson slagverkskennari Íslands.
Söngvari hljómsveitarinnar er Karl Tómasson, efsti maður á lista VG í
Mosfellsbæ.
Hér er um einstakan tónlistarviðburð að ræða.
Kaffiveitingar.
Allir velkomnir meðan tjaldrúm leyfir.
Vinstri-græn í Mosfellsbæ.
Hreinar línur!

