Fréttir
SU-kjördæmi - Allar kosningamiðstöðvar kjördæmisins hafa opnað sínar gáttir
Föstudaginn 27. apríl s.l. var opnuð kosningamiðstöð í Brennu á Hellu, það er Ragnheiður Jónasdóttir sem ræður þar ríkum. (Brenna er innsta hús í götunni þegar komið er að sunnan og ekið er inn fyrstu götu til vinstri). Efstu frambjóðendur kjördæmisins mættu, Atli, Alma, Heiða, Sigþrúður og heimakonan Arndís til að spjalla við kjósendur. Frambjóðendur kynntu hin ýmsu málefni VG og svörðu síðan fyrirspurnum fundarmanna. Málefni sem vörðuðu heimabyggð þeirra og landsmálin. Mikil gleði ríkti og var að sögn Ragnheiðar var almenn ánægja með þennan fund. Þegar hefur verið áætlað að vera með uppákomu þann 5 maí og mun Heiða mæta með gítarinn.
Laugardaginn 28. apríl, var opnuð minnsta kosningamiðstöð VG á Íslandi og var eins og við var að búast fullt út úr dyrum. Yndislegt verður var og því voru dýrindiskræsingar á borð bornar úti í garðinum. Heiðu barst liðsauki í "Ég og heilann minn" því Olga formaður svæðafélagsins í Hveragerði söng með henni lagið, þær voru yndislegar og ekki skemmdi að fuglarnir og sólin tóku undir.
Þá höfum við í Suðurkjördæmi opnað allar okkar kosningamiðstöðvar í kjördæminu og nú er að láta sjá sig á opnunartímun sem allir verða birtir á heimasíðu VG.is undir kosningaskrifstofur um leið og þeir hafa verið ákveðnir. Það eru skipulagðar uppákomur og fundir fram að kosningum og auðvitað á kosningadaginn sjálfan!

