Fréttir

Fjallagrös og sauðskinnsskór

28.4.2007

Vinstri-græn vilja með málþingi og sprotatorgi laugardaginn 28. apríl vekja athygli á nýsköpun og frumkvöðlastarfi í atvinnulífi undir yfirskriftinni Fjallagrös og sauðskinnsskór. Margir möguleikar aðrir en stóriðja eru til atvinnusköpunar, fjöldi fólks býr yfir snjallræðum, hugmyndum og frumkvæði, en skilyrði til að koma hugmyndum í framkvæmd eru ekki alltaf til staðar. Þau skilyrði er nauðsynlegt að efla.


Um morguninn verður fjallað um möguleika til nýsköpunar út frá ýmsum sjónarhornum. Aðilar úr atvinnulífi, menntakerfi og stjórnkerfi ræða þar um möguleika og hindranir sem frumkvöðlar þekkja vel og velta fyrir sér leiðum til úrbóta. Eftir hádegi verður efnt til sprotatorgs, þar sem fólk úr öllum áttum kynnir sig og viðfangsefni sín. Þarna verða jafnt ungir sem eldri; listamenn, handverksfólk, fólk sem er að koma fótum undir ný fyrirtæki eða fást við nýstárlega og spennandi hluti.


Málþing um nýsköpun og „allt annað“

í Listamiðstöðinni Straumi, sunnan álversins, laugardaginn 28. apríl kl. 10:00 – 12:00


Frummælendur

Sveinn Hannesson,framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins

Berglind Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Impru

Aðalbjörg Þorsteinsdóttir, frá fyrirtækinu Villimey á Tálknafirði

Karl Benediktsson, dósent í landfræði við Háskóla Íslands

Svanborg R. Jónsdóttir, nýsköpunarkennari og doktorsnemi við KHÍ

Magnús Þór Þorbergsson, fagstjóri í Fræði og framkvæmd, leiklistardeild LHÍ

Haukur Halldórsson, frá Víkingahringnum í Straumi


Samræður frummælenda og gesta að loknum framsögum


Fundarstjóri:

Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs



Allir velkomnir!


---


Eftir hádegi verður málþinginu fylgt eftir með sprotatorgi þar sem frumkvöðlar og aðrir hugmyndaríkir kynna sig og sitt að Grensásvegi 16a í þéttofinni dagskrá frá 13-17.


Sprotatorg með íslenskum frumkvöðlum

í kosningamiðstöð VG að Grensársvegi 16A, þéttofin dagskrá hátt og lágt 13:00 – 17:00


Frumkvöðlar og aðrir hugmyndaríkir:

Mundi design: fatahönnuður

Húfur sem hlæja

Shiva ehf.: vistvænn fatnaður

Græni hlekkurinn. Akur, grænmeti í áskrift

Birna Þórðardóttir: Menningarganga Birnu

Bjargey Ingólfsdóttir: heilsupúðar

Og margt fleira!


Listamenn verða með uppákomur úr ýmsum áttum á hálftíma fresti.



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica