1. maí-kaffi Vinstri - grænna á Hótel Borg
Að loknum baráttufundi verkalýðsins á Ingólfstorgi mun
Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Reykjavík bjóða öllum upp á kaffi
og baráttudagskrá á Hótel Borg. Ragnheiður Ásta Pétursdóttir verður
gestgjafi og stýrir dagskránni.
Álfheiður Bjarnadóttir, verkakona, Steingrímur Jóhann Sigfússon,
formaður Vinstrihreyfingarinn - græns framboðs, og Svandís
Svavarsdóttir sem leiðir lista VG í Reykjavík munu ávarpa samkomuna.
Af öðrum atriðum má nefna upplestur Einars Más Guðmundssonar, söng
Sigrúnar Valgerðar Gestsdóttur við undirleik Sigursveins K.
Magnússonar og fjöldasöng undir stjórn Árna Þórs Sigurðssonar annars
mnns á lista VG í Reykjavík.
Allir velkomnir!

