Fréttir

Fréttir frá Suðurkjördæmi - Frétt af framboðsfundi í Árhúsum, Hellu

26.4.2007

atliahelluSkemmtilegasti framboðsfundurinn til þessa í baráttunni í Suðurkjördæmi var haldinn á vegum Bændasamtaka Íslands og Búnaðarsambands Suðurlands í Árhúsum á Hellu, 23. apríl s.l. Mér leið eins og í útlöndum, á bökkum Signu, þegar ég kom að Árhúsum. Yndisleg umgjörð í sveit við Rangá. Fullt út úr dyrum eins og sagt er í sveitinni og mikil stemmning. Fyrst hélt heimamaður mjög fróðlega framsögu og síðan tók formaður Bændasamtakanna við og flutti þetta fína erindi og kynnti athyglisverðan bækling þeirra.  Þeir gerðu landbúnaðinum virkilega góð skil.  Síðan voru kynntir til sögunnar frambjóðendur í Suðurkjördæmi, hver fyrir sinn flokk, Kjartan reið á vaðið fyrir Sjálfstæðisflokkinn, síðan Björgvin fyrir Samfylkinguna, Guðni fyrir Framsókn, Grétar Mar fyrir Frjálslynda, Atli fyrir Vinstri græna og að lokum Ásta og Ingileif fyrir Íslandshreyfinguna.
Það var ekki að sökum að spyrja að okkar maður fór á kostum, vel að sér í landbúnaðarmálum, enda vel nestaður með skýrslur VG um landbúnaðarmál og vel lesinn. Og ekki spillti fyrir að hann hefur heimsótt fjölda bænda í kjördæminu úr öllum flokkum.  Búsetumismunun, raforkuverð til bænda og lífrænt ræktað var honum hugleikið. Þetta var inngangurinn. Síðan kom stuðið.  Kjartan lét sem fundurinn snérist eingöngu um Atla og flutti flotta ræðu um hann og skrif hans í fjölmiðla.  Hann  vísaði okkur að óvörum en til hróss í þörf ummæli Sævars Kristins Jónssonar, bónda, sem skipar 18. sæti á lista VG í kjördæminu. Guðni var vel upplagður, byggði á bröndurunum og skaut. Björgvin, sem Guðni lýsti var sem björtum bændadreng, fór vel með sitt mál og varði  breytta stefnu Samfylkingarinnar í landbúnaðarmálum. Grétar Mar maraði í sjó en fór hálfur í land og upp til sveita. En Atli var í banastuði og skaut fast á Kjartan og náði virkilega vel til salarins.  Hann benti Guðna og fundarmönnum á að staða framsóknarmanna hefði verið á bak við eldavél  sjálfstæðismanna undanfarin 12 ár. Um Íslandshreyfinguna tjái ég mig ekki, hún afgreiddi sig sjálf. Fundarmenn gerðu stefnubæklingum, merkjum og pokum VG góð skil.
Baráttukveðja,
Rannveig Sig., kosningstýra VG Suðurkjördæmi.


Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica