Framboðslisti VG í Dalabyggð
Á félagsfundi hjá Vinstrihreyfingunni-grænu framboð í Dalasýslu í gær lagði stjórn félagsins fram tillögu að framboði til sveitarstjórnarkosninga í vor. Listinn var einróma samþykktur og verður hann kynntur í dag 1. maí, baráttudag verkalýðsins á Gistiheimilinu Bjargi Búðardal kl 16-17. Allir velkomnir!
Listann skipa:
.
1. Þorgrímur Einar Guðbjartsson Erpsstöðum
2. Halla S. Steinólfsdóttir Ytri-Fagradal
3. Ásmundur Einar Daðason Lambeyrum
4. Guðrún Þóra Ingþórsdóttir Háafelli
5. Kristjana Dröfn Búðarbraut 10
6. Unsteinn Kristinn Hermannsson Leiðólfsstöðum 2
7. Kristján Garðarsson Efri-Múla
8. Friðjón Guðmundsson Hallsstöðum
9. Valgerður Lárusdóttir Fremri-Brekku
10. Halldís Hallsdóttir Bíldhóli
11. Jón Steinar Eyjólfsson Sámsstöðum
12. Hrefna Ingibergsdóttir Valþúfu
13. Jóhanna Jóna Kristjánsdóttir Lambanesi
14. Gísela E. Halldórsdóttir Gunnarsbraut lla
Þetta er í fyrsta sinn sem vg býður fram í Dalabyggð, en félagið var stofnað sl sumar. Ekki hefur áður verið boðið fram undir merkjum stjórnmálaflokkanna hér í sveit síðan Dalabyggð varð til 1994.

