Fréttir

Ályktun frá 1. maí kaffi VG í Reykjavík

1.5.2006

Vinstri græn hafa áður sent frá sér ályktun vegna launabaráttu starfsfólks á hjúkrunar- og dvalarheimilum fyrir aldraða en í tilefni af baráttuandanum sem var við völd meðal gesta í 1. maí kaffi Vinstri grænna á Hótel Borg 1. maí, er rétt að árétta eftirfarandi:

Gamalt fólk á það skilið að fá að eyða ævikvöldinu með reisn, - fólkið sem hefur byggt upp það samfélag sem við nú njótum, og það er brýnt að framlag þess til uppbyggingar samfélagsins sé viðurkennt með því að tryggja þeim, sem starfa við umönnun þess, mannsæmandi kjör.  Það er í anda markmiða um jafnrétti kynjanna að útrýma því misrétti sem konur í illa launuðum umönnunarstörfum hafa mátt búa við.

Gestir í 1. maí kaffi á Hótel Borg senda því starfsfólki hjúkrunar- og dvalarheimilanna sem staðið hefur í launabaráttu undanfarið stuðnings- og baráttukveðjur.

VG í Reykjavík

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica