Fréttir
Stemmning á flóamarkaði VG á laugardaginn
Yfir 200 manns litu inn á flóamarkaðinn á Suðurgötunni í gær. Það var frábær stemmning og gekk markaðurinn mjög vel, því hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn næsta laugardag. Tekið verður við munum á markaðinn á meðan á honum stendur á laugardaginn á milli kl.13:00 og 18:00. Markaðurinn er haldinn til fjáröflunar fyrir flokksstarfið vegna komandi kosning og er að sjálfsögðu haldinn í anda sjálfbærni og endurvinnslu. Heitt verður á könnunni og allir velkomnir.

