Fréttir

Páskafundur VG fyrir ungt fólk í Húnavatnssýslum

12.4.2007

Vinstri græn í Norðvesturkjördæmi héldu léttan páskafund fyrir ungt fólk í Húnavatnssýslum síðastliðinn laugardag. Fundurinn var haldinn á Árbakkanum þar sem boðið var upp á léttar veitingar með kosningarspjalli og tónlist. Ekki vantaði upp á mætinguna en mörg ungmenni mættu á fundinum og var hann hinn skemmtilegasti. Tónlistarmaðurinn Svarar Knútur opnaði fundinn og sá um að halda uppi fjörinu með fögrum tónum og róttækum skemmtilegum textum. Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir sem skipar 2. sæti lista VG í kjördæminu fór yfir helstu málefni flokksins og leytaðist eftir hugmyndum ungmenna á staðnum. Telma Magnúsdóttir tók síðan fyrir umhverfismálin en kom einnig inn á önnur mál er varða Húnavatnssýslur. Að lokum hélt Jón Bjarnason stutta kynningu á einstökum málefnum.

Vinstri græn þakka öllum fyrir skemmtilegan fund.

ungtfolk-blo ungtfolk-blo2

100_5722  100_5715

100_5705  100_5718

100_5709  100_5720

100_5721  100_5711

 



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica