Fréttir

Fréttatilkynning frá Vinstri grænum á Akureyri

4.5.2006

Aðfararnótt 1. maí s.l. lést Lilja Guðmundsdóttir. Hún skipaði 6. sæti á lista Vinstri grænna á Akureyri.  Það verður því að gera eftirfarandi breytingar á fyrirhuguðum framboðslista VG fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri sem fara fram þann 27. maí n.k. Embla Rún Hakadóttir, 19 ára nemi í MA, mun taka sæti Lilju og færast upp i 6. sæti listans. Margrét I. Ríkarðsdóttir, 52 ára þroskaþjálfi og forstöðumaður, mun skipa 9. sætið í stað Emblu Rúnar. Að öðru leyti verða ekki gerðar breytingar á V-lista Vinstri grænna á Akureyri. Þess má geta að auglýsingar og kynningarefni hefur þegar verið hannað fyrir Vinstri græn og í sumum tilfellum prentað og birt. Þess vegna munu myndir af Lilju birtast á efni á vegum listans áfram í kosningabaráttunni. Þetta er gert samkvæmt ósk aðstandenda Lilju. Vinstri græn á Akureyri votta aðstandendum Lilju samúð sína við fráfall þessarar dugmiklu
baráttukonu. Kosningamiðstöð Vinstri grænna á Akureyri verður lokuð frá klukkan 13 til 17 mánudaginn 8. maí vegna útfarar Lilju Guðmundsdóttur sem fram fer frá Akureyrarkirkju klukkan 13.30 þann dag.

Hallur Gunnarsson, formaður kjörstjórnar Vinstri grænna á Akureyri
Dýrleif Skjóldal Ingimarsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar græns
framboðs á Akureyri
Hlynur Hallsson kosningastjóri Vinstri grænna á Akureyri

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica