Fréttir

Hróplegt misrétti til náms: Tekjulitlu fólki á landsbyggðinni illkleift að sækja framhaldsnám

7.4.2007

Vinstrihreyfingin grænt framboð vekur athygli á því að íbúar fjölmargra byggðarlaga á landsbyggðinni búa við gríðarlegan aðstöðumun, hreint misrétti í reynd, varðandi aðgengi að framhaldsnámi. Lágtekju- og millitekjufólk á dreifbýlissvæðum á ekki kost á því að mennta börn sín til jafns við þéttbýlisbúa og er eitt brýnasta verkefni komandi kjörtímabils að bæta úr þessu.

Kannanir sýna að tilkostnaður við að senda ungling í framhaldsskóla á heimavíst nemur 6 – 700 þúsund krónum. Ef um dvöl námsmanns af landsbyggðinni í Reykjavík er að ræða nemur þessi kostnaður 1.1 milljón króna á ári! Er þá ótalinn ýmiss annar kostnaður s.s. vasapeningar, strætókort, skólagjöld, æfingagjöld og fl. er til kann að falla.

Stuðningur ríkisins við unglinga á framhaldsskólastigi sem þurfa að sækja nám utan heimabyggðar nemur um 100 þúsund krónum á önn og gefur auga leið að hann hrekkur hvergi nærri til. 

Ljóst er að það eru ekki allir foreldrar í stakk búnir fjárhagslega til að takast á við aukinn kostnað sem þessu nemur og sumum hverjum er það um megn. 

Þetta hefur það í för með sér að tekjulitlar fjölskyldur eru tilneyddar til þess að taka sig upp og flytja með börnum sínum á þéttbýlissvæðin vilji þær tryggja þeim aðgang að framhaldsskólanámi. 

Þá veldur það líka mikilli mismunun að námsbrautir framhaldsskólanna á landsbyggðinni búa stöðugt við skerta möguleika einkum varðandi iðnnám sem hefur þó sýnt sig að hefur grundvallarþýðingu fyrir skólana og byggðarlögin.. Einnig þetta veldur byggðaröskun. 

VG leggur áherslu á að alls staðar á landinu verði nemendum tryggt nám í héraði til 18 ára aldurs!

VG leggur áherslu á að betur verði búið að framhaldsskólum á landbyggðinni en nú er gert!

VG leggur áherslu á að mismunandi námskostnaður í framhaldsnámi verði jafnaður til fulls!

Vinstrihreyfinigin Grænt framboð vinnur nú að áætlun um hvernig megi markvisst jafna kjörin í landinu. Ljóst er að ójöfn tekjuskipting er þegar orðin þess valdandi að fólk hefur ekki jafnan aðgang að velferðarþjónustu landsmanna. Þetta er ólíðandi og krefst úrbóta þegar í stað! Mismunun á forsendum búsetu kemur síðan í ofanálag. Fólk sem þarf að sækja læknisþjónustu úr dreifbýli þarf iðulega að taka á sig verulegan auka kostnað sem mörgum er ofviða. Mismunun í menntun er sá þáttur sem hér er staðnæmst við. Um það efni veitir nánari upplýsingar Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, kennari en hún skipar 2. sæti á framboðslista VG í Norð-vestur kjördæmi (s. 847 9262). 

VG mun á komandi dögum kynna hugmyndir um jöfnunaraðgerðir á næsta kjörtímabili. BÆTUM KJÖRIN – BURT MEÐ FÁTÆKT er yfirskrift fundar sem efnt verður til um þetta efni í Hamraborg Kópavogi (Kragakaffi) kl. 16 næstkomandi þriðjudag.



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica