Málefnaáherslur VG í Reykjavík
Vinstri græn í Reykjavík kynna hreinar línur í borgarmálunum, sem byggja á félagslegu réttlæti og aðgengilegu samfélagi þar sem takmarkið er að allir fái lifað með reisn alla ævi. Vinstri græn í Reykjavík að allar ákvarðanir borgarstjórnar grundvallist á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Nú upp á síðkastið hafa málefnaáherslur framboðanna í Reykjavík verið að skýrast. Þar koma í ljós ýmsir snertifletir milli flokkanna, en um leið verður ljóst hvað það er sem skilur þá að. Vinstri græn í Reykjavík hafa markað sér skýra sérstöðu í eftirfarandi málaflokkum:
Gjaldfrjáls leik- og grunnskóli
leik- og grunnskóli verði gjaldfrjálsir að fullu
sjá börnum á grunnskólaaldri fyrir hollum gjaldfrjálsum skólamáltíðum
sjá til þess að öllum börnum í 1. ? 4. bekk standi til boða skapandi og uppbyggilegt starf í frístundaheimilum án gjalddtöku.
Innflytjendastefna
íslenskukennsla án endurgjalds standi innflytjendum til boða á vinnutíma
mikilvægi móðurmáls og eigin menningar verði viðurkennt með þeim úrræðum sem til þarf bæði í leik- og grunnskóla
mikilvægi þátttöku allra í mótun og uppbyggingu samfélagsins verði viðurkennt
Náttúru- og umhverfisvernd
við viljum stíga kjarkmikil skref í átt til náttúrulegri borgar með því að koma á sjálfbærum samgöngum, endurheimta SVR og geta þar með þétt leiðakerfið og bætt þjónustu nauðsynlegt er að gera öllum kleift að flokka sorp heima og skila á aðgengilegar endurvinnslustöðvar virða og efla græn svæði, þar á meðal Elliðaárdalinn, Heiðmörkina og ekki síst Viðey sem styrkist og eflist með samhengi í mannlífi og menningu
Orkuveita Reykjavíkur taki ekki frekari þátt í raforkuöflun til stóriðju en beini sjónum sínum einkum að því að sinna almenningi, þ.m.t. með gagnaveitu um alla borg
Kvenfrelsisstefna
eyða kynbundnum launamun með aðgerðum en ekki yfirlýsingum
útrýma klámi úr opinberu rými og hafna súlustöðum úr borginni
styrkja frjáls félagasamtök sem starfa í þágu kvenfrelsis og gegn kynbundnu ofbeldi
hafa sjónarmið beggja kynja ávallt að leiðarljósi
Stefna í málefnum aldraðra
heimaþjónusta og heimahjúkrun aldraðra verði samþætt og á einni hendi
byggð verði hjúkrunarrými til aðfullnægja brýnni þörf
Samfélag fyrir alla og með öllum
aðgengi að öllum opinberum svæðum borgarinnar verði tryggt en einnig aðgengi að öllum vefsíðum borgarinnar
táknmálstúlkun á öllum viðburðum borgarinnar verði tryggð
viðurkenna að aðgengi er forsenda þátttöku sem leggur grunninn að lýðræðislegu samfélagi
húsnæðisstefna borgarinnar þarf að tryggja framboð á ódýru leiguhúsnæði
Við vinstri græn erum meðvituð um að í sérhvert skipti sem samfélagslegar eigur eru seldar er vald framselt frá almenningi til peningavaldsins. Við teljum það hlutverk samfélagsins að sjá um velferðarþjónustuna og viljum tryggja að hún sé veitt á forsendum hvers og eins. Markmiðið er að allir fái lifað með reisn alla ævi.

