Fréttir
Ung vinstri græn grilla aftur
Ung vinstri græn á Akureyri grilla í Göngugötunni, föstudaginn 5. maí kl 16:00 fyrir utan kosningamiðstöð Vinstri grænna (Hafnarstræti 98). Síðast kláruðust ljúffengar pylsur og brauð á augabragði og færri komust að en vildu svo það er vissara að mæta tímanlega. Óáfengir drykkir verða einnig í boði. Allir sem staðsettir eru á Akureyri á þessum tíma er hvattir til að mæta í miðbæinn. Til sölu verða stuttermabolir gegn stóriðjubrjálæði.

