Mikilvægur áfangi í náttúruverndarbaráttunni
Stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fagnar úrslitum íbúakosningar í Hafnarfirði þar sem stækkun álvers Alcans var hafnað og Hafnfirðingar völdu græna framtíð. Úrslitin eru mikilvægur áfangi í baráttunni fyrir náttúru- og umhverfisvernd og gegn stóriðjustefnu stjórnvalda.
Það voru Vinstri græn í Hafnarfirði sem hófu baráttuna við síðustu bæjarstjórnarkosningar gengn stækkun álvers Alacnas í Straumsvík og vildu aðra framtíð og önnur tækifæri fyrir bæjarfélagið.
Fyrir þá framtíðarsýn hefur fulltrúi Vg staðið einn gegn öðrum 9 fulltrúunum í bæjarstjórn. Er ánægjulegt að meirihluti Hafnfirðinga skuli nú reynast sömu skoðunar og hafna stækkun álversins.
Að lokinni atkvæðagreiðslunni í Hafnarfirði er vert að minna á að hún er aðeins fyrsti áfangi í baráttunni í þágu náttúrunnar og fyrir önnur og ný tækifæri í atvinnulífi landsmanna. Nýting náttúruauðlinda kemur allri þjóðinni við og félagsleg og efnahagsleg áhrif stóriðjustefnunnar snerta þjóðina alla að sama skapi. Enn eru fyrirhuguð álver í Helguvík, Þorlákshöfn og Húsavík með tilheyrandi virkjanaframkvæmdum um land allt. Í Alþingiskosningum þann 12. maí næstkomandi gefst landsmönnum öllum færi á að kjósa um stóriðjustefnu stjórnvalda og framtíð náttúru landsins. Hafnfirðingar hafa slegið tóninn.

