Vikulegir spjallfundir VG í Kópavogi
Frá og með laugardeginum 6. maí munu verða vikulegir kaffispjallfundir hjá VG í Kópavogi á kosningamiðstöðinni, Hamraborg 1, 4.hæð.
Á laugardögum eru þeir milli 10 og 12, en einnig verða fundir á þriðjudögum milli 16 og 18.
Næsta laugardag, 6. maí, mun verða almennt opið hús og kaffi og meðlæti í boði.
Þriðjudaginn 9. maí milli 17 og 18 mun svo Steingrímur J. Sigfússon mæta galvaskur.
Komandi spjallfundir verða svo auglýstir þegar nær dregur.
Mætum, drekkum kaffi og ræðum málin!
Allir velkomnir!
Vinstri græn í Kópavogi

