Stjórnmálaflokkarnir gera samkomulag um takmörkun á auglýsingakostnaði
Stjórnmálaflokkarnir sem eiga fulltrúa á Alþingi, Framsóknarflokkurinn, Frjálslyndi flokkurinn, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstrihreyfingin – grænt framboð hafa gert samkomulag um að takmarka auglýsingakostnað í aðdraganda alþingiskosninganna 12. maí næstkomandi. Samkomulagið er afrakstur viðræðna formanna, framkvæmdastjóra og –stýru flokkanna sem staðið hafa undanfarnar vikur.
Samkomulagið felur í sér að flokkarnir skuldbinda sig til að takmarka kostnað við auglýsingabirtingar í dagblöðum og ljósvakamiðlum á landsvísu. Heildarkostnaður hvers flokks vegna auglýsingabirtinga í þessum fjölmiðlum verði ekki hærri en 28 milljónir króna. Jafnframt er samkomulag um að óháður aðili verði fenginn til að hafa eftirlit með framkvæmdinni.
Samkomulagið á rætur að rekja til laga um starfsemi stjórnmálaflokkanna sem samþykkt voru á Alþingi fyrir áramót. Þar var í fyrsta sinn tekið á fjármögnun stjórnmálaflokkanna með það fyrir augum að gera fjármál þeirra opinber og gegnsæ. Þar eru settar skorður við fjáröflun flokkanna meðal lögaðila og einstaklinga en ríkisframlög hækkuð til samræmis. Hið nýja samkomulag er hið fyrsta sem stjórnmálaflokkar gera með sér síðan 1991 og er leið þeirra til að koma böndum á útgjöld vegna kosningabaráttunnar.
Nánari upplýsingar veita
Andri Óttarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins
s. 664-6407
Drífa Snædal, framkvæmdastýra Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs
s. 695-1757
Magnús Reynir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins
s. 893-3783
Sigfús Ingi Sigfússon, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins
s. 892-3270
Skúli Helgason, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar
s. 695-6901

