Laugardagsfundur VG í Reykjavík
Laugardaginn 6. maí verður haldinn málefnafudur í kosningamiðstöð VINSTRI-GRÆNNA í Suðurgötu 3 kl. 14:00
Hermann Valsson, sem skipar 5. sæti listans í borgarstjórnarkosningunum hefur framsögu um áherslur VG í málum er varða kynjajafnrétti og kvenfrelsi. Gestur fundarins verður Guðrún Ágústsdóttir fyrrv. forseti borgarstjórnar, sem skipar heiðurssæti lista VG í vor. Hún mun líta yfir farinn veg með kynjagleraugum og segja frá því helsta sem er að gerast í nágrannalöndum okkar í kynjajafnréttismálum.
Fjölmennum og tökum þátt í umræðunni.
Kosningastjórar

