Steingrímur, Guðfríður Lilja og Árni Þór á ferð um Norðurlönd
23.03.2007
Um helgina verða Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Árni Þór Sigurðsson, frambjóðendur, á ferð um Suður Svíþjóð og Danmörk. Fyrsti áfangastaður er Malmö í Svíþjóð þar sem haldinn verður opinn fundur á morgun, laugardaginn 24. mars klukkan 14:30 að Lugngatan 43. Sunnudeginum verður varið í Danmörku; haldinn verður opinn fundur í Álaborg í Kanalhúsinu, Dampstræde 48, klukkan 11:30. Að kvöldi sunnudagsins 25. mars verður haldinn fundur í Jónshúsi í Kaupmannahöfn klukkan átta.
Nánari upplýsingar veitir Huginn Freyr Þorsteinsson í síma 821 3434

