Laugardagsfundur Vinstri grænna á Akureyri um neytendamál og nýja Íslendinga
Laugardaginn 6. maí 2006 verður í Kosningamiðstöð Vinstri grænna, Hafnarstræti 98, Akureyri klukkan 15-16. Athugið að fundurinn er að þessu sinni klukkan þrjú síðdegis!
Gestir fundarins:
Anna Guðný Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri Alþjóðastofu og Brynhildur Pétursdóttir, starfsmaður Neytendasamtakanna.
Fundarsjórar:
Embla Rún Hakadóttir og Hlynur Hallsson
Á þessum 6. laugardagsfundi verður velt upp spurningum eins og:
- Hvað er brýnast að gera fyrir nýja Íslendinga?
- Er hætta á að hér skapist "innflytjendavandamál"?
- Hvað gerir Alþjóðastofan?
- Þurfum við ekki líka að aðlagast?
- Hvernig stöndum við okkur í neytendamálum?
- Eru íslendingar nægilega kröfuharðir neytendur?
- Eru Neytendasamtökin nægilega sterk?
- Hvað getum við gert?
Fundurinn stendur í um klukkutíma og á eftir stuttum inngangi frá Önnu og Brynhildi verða umræður. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Á laugardagsfundi þann 13. maí verða tekin fyrir MENNINGARMÁL OG HÁSKÓLINN Á AKUREYRI Gestir þess fundar eru Katrín Jakobsdóttir varaformaður VG og Þorsteinn Gunnarsson rektor Háskólans á Akureyri Fundarstjórar verða Baldvin Esra Einarsson og Elsa Guðmundsdóttir en þau skipa sæti á V-lista Vinstri grænna á Akureyri.
Vinstri græn ? hreinar línur

