Fréttir

Sveitarstjórnarráð Vg stofnað

23.3.2007

Á Landsfundi Vinstri grænna í síðasta mánuði var ákveðið að stofna formlega sveitarstjórnarráð flokksins. Fyrsti fundur ráðsins var haldinn í gær, 22. mars.  Þar var kjörin stjórn sveitarstjórnarráðsins og skipa hana:

Árni Þór Sigurðsson, Reykjavík, formaður

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, Hafnarfirði, varaformaður

Ásbjörn Björgvinsson, Húsavík, ritari

Finnbogi Rögnvaldsson, Borgarbyggð

Kristín Sigfúsdóttir, Akureyri

 

Á fundi ráðsins voru samþykktar eftirfarandi ályktanir:

 

Ályktun um stöðu sveitarfélaganna

“Sveitarstjórnarráð Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs telur mikilvægt að styrkja stöðu sveitarfélaganna í landinu.  Sveitarfélögin gegna æ þýðingarmeira hlutverki í samfélagsþjónustunni en á sama tíma og verkefni þeirra hafa aukist, skortir verulega á að tekjustofnar þeirra nægi almennt til að standa undir verkefnum þeirra og veita öfluga þjónustu.

 

Sveitarstjórnarráð Vinstri grænna telur óhjákvæmilegt að bæta verulega afkomu sveitarfélaganna og tryggja þeim nettó tekjuauka af stærðargráðunni 5 milljarða króna. Tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga er í engu samræmi við þau verkefni sem sveitarfélögin hafa á sinni könnu, sérstaklega varðandi félagsleg velferðarverkefni, verkefni á sviði skólamála o.fl. sem flutt hafa verið frá ríki til sveitarfélaga.  Þetta veldur því að mikill meiri hluti sveitarfélaga getur ekki sinnt þessum brýnu verkefnum og þarf því að steypa sér í skuldir vegna nauðsynlegra  fjárfestinga og til að sinna almennri grunnþjónustu sem þykir sjálfsögð í hverju sveitarfélagi.

 

Jafnframt leggur sveitarstjórnarráð VG áherslu á að sveitarfélögunum verði, í samstarfi við ríkisvaldið, tryggðar tekjur til að mæta verkefnum á sviði umhverfis- og velferðarmála, svo sem á sviði sorpförgunar- og fráveitumála, til að auka endurvinnslu og til að koma á gjaldfrjálsum leikskóla og grunnskóla.

 

Sveitarstjórnarráðið skorar á þá ríkisstjórn sem við tekur í vor, að rétta nú þegar hlut sveitarfélaganna í landinu þannig að þau geti uppfyllt lögmætar skyldur sínar  við íbúana með sóma.”

 

 

Ályktun vegna atkvæðagreiðslu um stækkun álbræðslunnar í Straumsvík og fyrirhugaðra virkjana í neðrihluta Þjórsár

“Um leið og sveitarstjórnarráð Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs fagnar því að efnt verði til atkvæðagreiðslu í Hafnarfirði 31. mars 2007 er bent á að jafn afdrifaríkar ákvarðanir á þessu sviði og stækkun álbræðslunnar í Straumsvík og aðrar stóriðju- og virkjanaframkvæmdir geta ekki talist einkamál einstakra sveitarfélaga.

 

Sveitarstjórnaráð lýsir fullum stuðningi við jarðeigendur og heimamenn á Suðurlandi sem berjast nú gegn virkjunum í neðri hluta Þjórsár. Ekkert kallar á þær umhverfisfórnir sem óhjákvæmilega hljótast af  stækkun álbræðslunnar í Straumsvík og virkjunum í neðri hluta Þjórsár. Stækkun álbræðslunnar myndi valda verulega aukinni loftmengun og losun gróðurhúsalofttegunda yrði meiri en öll losun frá samgöngum á Íslandi árið 2004.

 

Sveitarstjórnarráð Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs skorar á Hafnfirðinga að hafna stækkun álbræðslunnar í Straumsvík í atkvæðagreiðslu 31. mars næstkomandi. “

 



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica