Dýr fyrningarfrestur
Vinstrihreyfingin – grænt framboð lýsir ánægju með að loks skuli lokið við endurbætur á kynferðisbrotakafla hegningarlaganna og að frumvarp það sem legið hefur fyrir Alþingi síðan vorið 2006 skuli loks orðið að lögum. Þar með vannst áfangasigur í áralangri baráttu flokksins fyrir bættu lagaumhverfi varðandi þessi alvarlegu brot. Vinstri græn fagna því að á endanum skuli hafa náðst sátt um afnám fyrningarfrests í alvarlegustu kynferðisbrotunum gegn börnum. Baráttan gegn ofbeldi gegn konum og börnum er forgangsmál hjá Vinstri grænum og ber að fagna hverju skrefi í þá átt að mannréttindasjónarmið nái til meðferðar ofbeldisbrota sem eru kynbundin eða framin eru inni á heimilum.
Það er þó ekkert launungarmál að okkur hefði þótt sjálfsagt og eðlilegt að ganga lengra í átt til breytinga. Þannig teljum við að lögin hefðu átt að tryggja réttarvernd kynfrelsis, þannig að fallið hefði verið frá því að hafa verknaðarlýsingu inni í nauðgungarákvæðinu. Að okkar mati nægir að segja að hver sem gerist sekur um nauðgun skuli sæta refsingu, á sama hátt og sá sem gerist sekur um aðra alvarlega glæpi (manndráp, þjófnað o.s.frv.) er sekur, hver sem verknaðaraðferðin er. Við munum því halda baráttu okkar fyrir kynfrelsi áfram og því að það samræði án samþykkis teljist nauðgun þó ofbeldis eða hótunar sé ekki getið í lagaákvæðinu.
Þó ýmislegt hafi hér verið fært til betri vegar þá stóð ein breytingartillaga í meirihlutanum á Alþingi. Það var tillaga Kolbrúnar Halldórsdóttur um að fara sænsku leiðina í ákvæðum þeim er varða vændi; þ.e. að gera það refsivert að kaupa vændi. Þegar meirihlutinn var farinn að óttast að fylgi við breytingartillögu Kolbrúnar nyti meirihlutastuðnings var því hótað að frumvarpið yrði í heild sinni dregið til baka og ekkert yrði af neinum breytingum á kyferðisbrotakaflanum ef því yrði haldið til streitu að hún kæmi til atkvæða. Við vinstri græn mátum það svo að betra væri að ná fram þeim réttarbótum sem frumvarpið felur í sér, heldur en að stöðva allt málið. Það varð úr að ákvæði um afnám fyrningarfrests í alvarlegustu brotunum gagnvart börnum fór inn ásamt því að ákveðið var að vísa máli Kolbrúnar um brottvísun ofbeldismanns af heimili til ríkissstjórnar og að samþykkja tillögu um undirbúning fullgildingar samnings Evrópuráðsins um aðgerðir gegn mansali, en sá samningur felur í sér svipaðar aðgerðir og frumvarp Kolbrúnar um fórnarlambavernd.
En baráttan fyrir því að vændi verði skilgreint sem kynbundið ofbeldi heldur áfram. Við vinstri græn treystum því að kjósendur gefi skýr skilaboð í komandi kosningum um að þær tillögur sem þingflokkurinn hefur lagt fram síðustu átta ár um réttarbætur til þolenda ofbeldis verði að lögum eftir kosningar. Meðal þeirra eru tillögur um að kaupendur vændis verði gerðir ábyrgir fyrir því ofbeldi sem vændi felur í sér, að þeir sem beita heimilisofbeldi verði fjarlægðir af heimilunum í stað þess að fórnarlömbin séu tekin og flutt í athvarf, að fórnarlömbum mansals sé tryggð fórnarlambavernd og að gerð verði undanþága frá takmarkandi ákvæðum um dvalarleyfi útlendinga, sem sækja um skilnað vegna heimilisofbeldis.
Baráttan gegn kynbundnu ofbeldi er mannréttindabarátta og hún er studd af kvennahreyfingum landsins og mannréttindasamtökum. Við vinstri græn unnum okkur ekki hvíldar fyrr en fullur sigur er unninn
