Vinstri græn í Reykjavík með strætó um alla borg
Næstu daga verða frambjóðendur Vinstri - grænna á ferð og flugi um alla borg. Við höfum fengið strætó til liðs við okkkur og rekum færanlega kosningamiðstöð í strætó. Þannig leitast frambjóðendur VG við að hitta sem flesta kjósendur og munu fara á milli fjölfarinna staða um alla borg fram að kosningum. Þetta finnst okkur afar viðeigandi þar sem Vinstri -græn leggja áherslu á að strætó fái aukinn forgang í umferðinni, ferðir verði tíðari og netið verði gert þéttara. Við teljum öflugar almenningssamgöngur forsendu fyrir því að draga megi úr mengun frá umferð og að umhverfi borgarbúa verði með þeim hætti að það ógni ekki heilsu fólks. Við hefjum leik 11. maí kl. 16:00 í Spönginni, Grafarvogi. Þar verða frambjóðendur í efstu sætum listans ásamt formanni flokksins Steingrími J. Sigfússyni, sem fer nú um landið til að ræða við kjósendur um áherslur Vinstri-grænna í komandi kosningum.
Annars er dagskrá kosningamiðstöðvar í strætó næstu tvær vikur sem hér segir:
11. maí 16:00 ? 17:30 Spöngin, Grafarvogi
11. maí 17:30 ? 19:00 Torgið við Hverafold
12: maí 16:00 ? 17:30 Hólagarður, Breiðholti
12. maí 17:30 ? 19:00 Mjóddin
13. maí 13:00 ? 14:30 Bónus, Hraunbæ 121
13. maí 14:30 ? 16:00 Nóatún, Grafarholti
14. maí 13:00 ? 14:30 Húsgagnahöllin, Bíldshöfða
14. maí 14:30 ? 16:00 Holtagarðar
18. maí 16:00 ? 17:30 Austurver, Háaleitisbraut
18. maí 17:30 ? 19:00 Laugar í Laugardal
19. maí 16:00 ? 17:30 Glæsibær, Álfheimum
19. maí 17:30 ? 19:00 Heiðrún, Stuðlahálsi
20. maí 13:00 ? 14:30 JL-húsið Hringbraut
20. maí 14:30 ? 16:00 Skeifan
21. maí 13:00 ? 16:00 Kolaportið

