Er Alcan íslenskt fyrirmyndarfyrirtæki?
Í tilefni af yfirlýsingum í bréfi forstjóra Alcan Primary Metal Group, til bæjarstjóra Hafnarfjarðar, með samriti til stjórnar Alcan og forsætisráðherra, um stöðu fyrirtækisins sem íslensks fyrirmyndarfyrirtækis getur bæjarfulltrúi Vinstri grænna í bæjarstjórn Hafnarfjarðar ekki komist hjá því að velta fyrir sér siðferðilegri ábyrgð fyrirtækisins. Ef fyrirtæki ætlar að hreykja sér af því að vera slíkt fyrirmyndarfyritæki þá hlýtur að fylgja slíkri nafnbók aukin siðferðileg ábyrgð. Samhliða yfirlýsingu forstjórans eyðir fyrirtækið hundruðum milljóna til að hafa áhrif á lýðræðislega ákvörðun hér í Hafnarfirði. Ekki getur það nú talist til fyrirmyndar.
Á sama tíma og fyrirtækið hreykir sér af því að vera í fararbroddi á heimsvísu hvað varðar umhverfis-, heilbrigðis- og öryggismál þakka þeir fyrir tillögur bæjarins um að velja hagkvæmustu leiðina fyrir orkulínur fyrir orkuflutning vegna stækkunar álbræðslunnar. Það að velja hagkvæmustu leiðina fyrir fyrirtækið og hlaða niður háspennuskógi frá Skeiða- og Gnúpverjahreppi og frá Hellisheiði til Straumsvíkur getur ekki farið saman við að vera í fararbroddi í umhverfis- og heilbrigðismálum.
Af þessu sést vel hversu nauðsynlegt það er að reyna að jafna aðstöðumun grasrótarsamtaka gagnvart erlendum auðhring. Nýverið voru samþykkt á Íslandi lög um að framlög til stjórnmálaflokka frá Íslenskum fyrirtækjum mættu ekki fara yfir 300.000 krónur. Alcan er örugglega komið nálægt hundraðfaldri þeirri tölu í tilraun sinni til að hafa áhrif á viðhorf kjósenda.
Er nóg að skapa íbúum aðstöðu til að segja sína skoðun í atkvæðagreiðslu? Þarf ekki að fylgja að íbúalýðræðið verði ekki með jafn ójöfnum og ólýðræðislegum hætti og gera á hér í Hafnarfirði?
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi VG í Hafnarfirði

