Félagsfundur VG í Hveragerði
Á félagsfundi VG í Hveragerði, sem haldinn var 21. febrúar 2007, var kosin ný stjórn fyrir félagið til bráðabirgða. Formaður var kosin Guðrún Olga Clausen, meðstjórnendur Úlfur Björnsson og Guðmundur Arason og í varastjórn Hildur Svava Karlsdóttir. Jafnframt var ákveðið var að halda aukaaðalfund í mars nk. Á fundinum voru kjörnir 6 fulltrúar á landsfund VG. Frjóar umræður fóru fram um ýmis sérmál Hveragerðis og nágrennis. Þar bar hæst umræða um framtíð Garðyrkjuskólans á Reykjum, um samgöngumál, einkum fyrirhugaða tvöföldun Suðurlandsvegar, almenningssamgöngur, tillitssemi í umferðinni og sjóflutninga, um atvinnumál, fjárhag sveitarfélagsins og kjaramál kennara. Einnig var farið yfir helstu landsmál og kosningabaráttuna framundan. Fyrirhugaðir eru reglulegri fundir um sérmál sem landsmál, kosningabaráttuna og fleira og verður fyrsti fundurinn haldinn 7. mars nk. Gestir fundarins voru Atli Gíslason og Alma Lísa Jóhannsdóttir, sem skipa 1. og 2. sæti framboðslista VG í Suðurkjördæmi.

