Fréttir

Er Framsókn með bundið fyrir augun?

6.10.2001

Þau skilaboð sem kjósendur sendu ráðamönnum með miklum stuðningi við Vinstrihreyfinguna - grænt framboð virðast ekki hafa náð til allra. Iðnaðarráðherra spásserar nú sem aldrei fyrr með stóriðjuhöldum um Austfirði og lætur vel af áhuga norskra. Þrátt fyrir að tímasetningin sé augljóslega liður í kapphlaupi um tilvonandi ráðherrastóla Framsóknar ber að líta þetta alvarlegum augum. Framsóknarflokkurinn galt afhroð á Austurlandi um leið og VG vann mikinn sigur. Ef Framsóknarmenn slá hvergi af stóriðju- og stórvirkjanastefnu sinni í ljósi kosningaúrslitanna má spyrja hvort sjálfseyðingarhvöt þess gamla flokks séu engin takmörk sett.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica