Fréttir

Leiðbeinandi forval í Norðausturkjördæmi

10.10.2006

Aðalfundur Kjördæmisráðs VG í Norðausturkjördæmi,  haldinn á Akureyri 7. október 2006,  samþykkir að haldið verði leiðbeinandi forval við uppröðun á framboðslista Vg í kjördæminu.  Forvalið skal vera í formi póstkosningar þar sem rituð verða 6 nöfn og fylgir listi yfir þá sem gefa kost á sér í 6 efstu sætin. Leyfilegt er að skrifa á kjörseðil fleiri nöfn en nefnd eru á listanum. Stjórn Kjördæmisráðs semur nánari reglur um framkvæmdina.

 

Aðalfundur Kjördæmisrásins kaus einnig 5 manna uppstillingarnefnd til að annast forvalið og uppröðun á lista, þau Valgerði Jónsdóttur ? formann, Steinþór Heiðarsson, Ólaf Þ Jónsson, Gunnar Ólafsson og Karenu Erlu Erlingsdóttur.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica