Samráðsfundur VG á Hvanneyri
Um helgina var haldinn fundur í samráði Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs að Hvanneyri í Borgarfirði. Þar var rætt um undirbúning landsfundar að hausti, uppbyggingu og tilhögun flokksstarfs á næstunni og alþjóðasamskipti. Þá urðu talsverðar umræður um stjórnmál líðandi stundar, s.s. byggðamál, landbúnaðarmál, stjórn fiskveiða, hugmyndir um Fljótsdalsvirkjun, velferðarþjónustu og menntamál, hringamyndun í atvinnulífinu og heræfingar á Íslandi. Í lok fundarins var samþykkt eftirfarandi ályktun: ?Samráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs, haldinn á Hvanneyri 25.-26. júní, leggur áherslu á ný vinnubrögð og skapandi hugsun í viðfangsefnum stjórnmála á Íslandi. Fundurinn telur ríkjandi stefnu einkavæðingar og markaðshyggju helstu rót þess vanda sem við blasir, einkum í efnahags- og atvinnumálum, byggðamálum og umhverfismálum. Í stað þess að leggja áherslu á útboð og samkeppni í almannaþjónustu verður að stofna til fjölbreyttra atvinnutækifæra um land allt enda eru hagsmunir þjóðarinnar allrar þar í húfi. Styðja ber frumkvæði heimamanna á hverjum stað og tryggja að þeir móti sjálfir hugmyndir um nýsköpun í atvinnulífi á grundvelli þeirra tækifæra sem eru fyrir hendi á hverju landsvæði. Í því sambandi er mikilvægt að ýta jafnhliða undir vöxt framleiðslu- og þjónustugreina, s.s. framleiðslu hollra matvæla fyrir innlendan og erlendan markað, ferðaþjónustu og uppbyggingu opinberrar þjónustu í öllum landshlutum. Jafnframt verður að koma til öflug grunn- og framhaldsmenntun, endurmenntun og símenntun. Alvarlegt atvinnuástand í mörgum byggðarlögum og skortur á virðingu fyrir náttúruauðlindum eru bein afleiðing af röngum áherslum og úreltum vinnubrögðum þar sem hagsmunir stórfyrirtækja og fjármagnseigenda hafa gengið fyrir hagsmunum fólks og náttúru. Vinstrihreyfingin ? grænt framboð mun í öllu starfi á komandi kjörtímabili hafa það markmið að leiðarljósi að um allt land skapist tækifæri til blómlegrar búsetu þar sem fjölbreytt gæði íslenskrar náttúru til lands og sjávar verði nýtt af virðingu og skynsemi, í anda róttækrar umhverfisverndar og vinstristefnu. Jafnframt leggur Vinstrihreyfingin ? grænt framboð áherslu á friðsamlega samvinnu Íslendinga við aðrar þjóðir og að Ísland og íslensk náttúra njóti friðhelgi fyrir hvers kyns hernaðarbrölti.?

