Fréttir

Framboð í forval VG á höfuðborgarsvæðinu vegna alþingiskosninga 2007

12.10.2006

Auglýst er eftir framboðum í forval Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs vegna alþingiskosninga 2007 í kjördæmunum Reykjavík suður, Reykjavík norður og Suðvesturkjördæmi. 

 

Framboðsfrestur er til kl. 17.00 laugardaginn 11. nóvember 2006 og skulu tilkynningar um framboð berast skriflega fyrir þann tíma merktar sem hér segir

 

Vinstrihreyfingin ? græn framboð

b.t. kjörstjórnar VG á höfuðborgarsvæðinu

Pósthólf 175   

121 Reykjavík

 

Þeir sem vilja stinga upp á frambjóðanda geri það einnig skriflega til kjörstjórnar. Uppástungur þurfa að berast eigi síðar en 4. nóvember 2006 og mun kjörstjórn þá leita eftir samþykki þeirra sem bent hefur verið á. Uppástungum um frambjóðendur á að fylgja heimilisfang þeirra og símanúmer.

 

Kjörstjórn VG á höfuðborgarsvæðinu

Einar Ólafsson

Margrét Pétursdóttir

Svanhildur Kaaber

Sverrir Jakobsson

Úlfar Þormóðsson

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica