Fréttir

Gæsavinurinn Finnur

6.10.2001

gooseFinnur Ingólfsson sýnir enn á sér nýja hlið í samtali við blaðamann Dags 3. september. Þar segir Finnur um Eyjabakkasvæðið að heiðagæsin komi þangað í leit að kyrrð, ró og vatni. Jafnframt lætur Finnur að því liggja að umferð ferðafólks muni hrekja gæsina burt að lokum en ef það verður virkjað hefur gæsin meiri möguleika á að færa sig út á vatnið?. Þetta er sennilega eitt fegursta dæmið um einlægan vilja til náttúruverndar á Íslandi. Finnur vill hjálpa gæsinni með því búa til handa henni stærri tjörn og binda enda á átroðning bakpokalýðsins þar eystra. Og þótt gróðurinn fari allur á kaf þá verður gæsin náttúrulega bara að bryðja grjót úr hlíðum Snæfells ef hún verður svöng.

Nú eða bíða í 15 ár eftir tilbúnum melgresisakri að naga úr. Annað væri tómt vanþakklæti og fuglar sem ekki taka þessu mikla kostaboði geta bara átt sig. Náttúrulega.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica