Fréttir
Reglur vegna forvals á höfuðborgarsvæðinu
Reglur um forval Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs vegna alþingiskosninga 2007 í kjördæmunum Reykjavík suður, Reykjavík norður og Suðvesturkjördæmi.
Markmið forvalsins er að velja fjóra efstu frambjóðendur flokksins í hverju þessara kjördæma í næstu alþingiskosningum.
Framkvæmd forvalsins verður með eftirfarandi hætti:
- Skipuð skal kjörstjórn til að annast framkvæmd forvalsins. Stjórn Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs í Reykjavík (VGR) skipar þrjá menn í kjörstjórnina og stjórn kjördæmisráðs VG í Suðvesturkjördæmi (VGSV) skipar tvo. Kjörstjórn setur sér fastar starfsreglur og skal komast að sameiginlegri niðurstöðu í öllum málum.
- Stjórn VGR og stjórn kjördæmisráðs VGSV skulu ásamt kjörstjórn ákveða hvenær forvalið fer fram.
- Forvalið skal auglýsa á heimasíðu flokksins og í fréttabréfum.
- Framboðsfrestur er til kl. 17:00 þann 11. nóvember 2006. Þeir sem gefa kost á sér skulu tilkynna það skriflega til kjörstjórnar. Þeir sem vilja stinga upp á frambjóðanda geri það einnig skriflega til kjörstjórnar fyrir 4. nóvember og mun kjörstjórn þá leita eftir samþykki þeirra sem bent hefur verið á.
- Kosningarétt hafi allir félagsmenn í VGR og VGSV miðað við 25.nóvember 2006. Kjörskrá verður lokað kl. 17:00 þann 25. nóvember 2006.
- Félagsmenn VGR og VGSV sem eru búsettir erlendis geta fengið kjörseðil sendan í tölvupósti ef þeir óska þess. Um slíka póstkosningu skal fara samkvæmt reglum sem kjörstjórn setur.
- Utankjörfundaratkvæðagreiðsla skal fara fram kl. 16:00-21:00 dagana 28. nóvember og 30. nóvember í Suðurgötu 3 í Reykjavík, Strandgötu 11 í Hafnarfirði og Hlégarði í Mosfellsbæ.
- Kjörfundur skal haldinn 2. desember 2006 að Suðurgötu 3 í Reykjavík, Strandgötu 11 í Hafnarfirði og Hlégarði í Mosfellsbæ kl. 10:00 ? 22:00. Á hverjum kjörstað skal heimilt að kjósa utan kjörfundar og geta félagsmenn VGR og VGSV því valið sér hvern þessara kjörstaða sem er hvort sem þeir búa í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Kjós, Mosfellsbæ, Garðabæ, á Seltjarnarnesi eða Álftanesi.
- Gerður skal bæklingur með nöfnum frambjóðenda, upplýsingum um þá og sýnishorn af kjörseðli með leiðbeiningum um hvernig kjósa skuli. Hver frambjóðandi ber ábyrgð á kynningarefni um sjálfan sig og fær eina síðu til að koma því fram í samræmi við reglur sem kjörstjórn setur um fjölda og gerð mynda, leturstærð, leturgerð o.þ.h. Stjórn VGR og stjórn kjördæmisráðs VGSV skipa ritstjóra sem sér um framkvæmdina. Bæklingurinn verður sendur til allra félagsmanna í VGR og VGSV.
- Þegar kjósandi mætir á kjörstað fær hann seðil með nöfnum frambjóðenda í stafrófsröð en dregið skal um hvaða nafn verður efst á listanum.
- Stjórn VGR og stjórn kjördæmisráðs VGSV skipa umboðsmenn á hvern kjörstað til að fylgjast með framkvæmd kosningar og aðstoða kjósendur sem þess óska.
- Kjósandi skal raða að hámarki tólf frambjóðendum en aldrei færri en níu í sæti nr. 1-4 þannig að hann gefur þremur frambjóðendum númerið 1, þremur númerið 2, þremur númerið 3 og ef vill þremur númerið 4.
- Kjörstjórn annast talningu atkvæða strax að loknum kjörfundi og birtir úrslit kosningarinnar formlega á vettvangi sem stjórnir félaganna ákveða.Úrslit forvalsins eru leiðbeinandi fyrir kjörnefnd við röðun frambjóðenda á lista.
- Í anda kvenfrelsis skal tryggja jafnræði kynja við uppröðun á hverjum hinna þriggja lista sem um ræðir. Til þess að svo verði skal eftirfarandi reglum beitt:
a) Fjöldi atkvæða í einstök sæti ræður úrslitum þannig að þeir þrír frambjóðendur sem fá flest atkvæði í 1. sæti teljast hafa hlotið kosningu í það sæti, þó einungis svo að a.m.k. einn sé af hvoru kyni. Séu allir þrír sem fá flest atkvæði í 1. sætið af sama kyni skal sá þeirra sem fæst atkvæði hlýtur færast niður í annað sæti en þess í stað hlýtur kosningu sá frambjóðandi af gagnstæðu kyni sem hlýtur flest atkvæði í 1. sæti.
b) Kosningu í 2. sæti hljóta þeir þrír frambjóðendur sem fá flest atkvæði í 1.-2. sæti þó þannig að efstu tvö sæti listanna verði skipuð þremur körlum og þremur konum.
c) Um kosningu í 3. sæti gilda sömu reglur og í 1. sæti þannig að tryggt sé að ekki séu færri frambjóðendur en fjórir af báðum kynjum í efstu þremur sætum listanna þriggja.
d) Kosningu í 4. sæti hljóta þeir þrír frambjóðendur sem fá flest atkvæði í 1.-4. sæti þó þannig að efstu fjögur sæti listanna verði skipuð sex körlum og sex konum.
- Frambjóðandi getur kært framkvæmd kosningarinnar til kjörstjórnar. Kjörstjórn tekur kæruna fyrir og birtir rökstutt álit sitt innan eins sólarhrings.
- Kjörstjórn stillir upp þremur framboðslistum og ákveður hvaða kjördæmi hver þeirra verður merktur. Kjörstjórn leggur tillögu sína fyrir sameiginlegan fund þeirra félaga sem að forvalinu standa.

