Ályktun frá þingflokki VG
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs vekur athygli á að samkvæmt landslögum er bannað að auglýsa áfengi. Auglýsingar af því tagi sem ákveðin verslunarkeðja hefur staðið fyrir í fjölmiðlum að undanförnu eru því fjarri því að samræmast landslögum. Auglýsingar verslunarkeðjunnar bera vott um ábyrgðarleysi og vanvirðingu. Að undanförnu hafa fréttir borist af aukinni notkun vímuefna, þar með talið aukinni áfengisnotkun. Fjölmargar fjölskyldur standa ráðþrota gagnvart misnotkun áfengis og annarra vímuefna. Þessa dagana stendur yfir söfnun SÁÁ til starfsemi sinnar. Söfnunarátakinu er sérstaklega ætlað að auka meðferðarmöguleika fyrir unglinga sem lent hafa í þeirri ógæfu að ánetjast vímuefnum. Í stað þess að brjóta niður landslög eins og áðurnefnd verslunarkeðja gerir með auglýsingum sínum væri henni sæmra að styrkja forvarnastarf og leggja lið baráttunni gegn áfengi og öðrum hættulegum vímuefnum.

