Fréttir

Má fara víðar með sópinn?

11.10.2001

Yngri Framsóknarmenn tóku sig til um helgina og sópuðu anddyri Útvarpshússins við Efstaleiti. Sópararnir sögðu þetta gert í þeim tilgangi að hreinsa þaðan út pólitíska vinda, þóttust nokkuð góðir og hafa vel að verið.

Óhætt er að taka undir það með sópurunum að Ríkisútvarpið hefur oftsinnis liðið fyrir óeðlileg pólitísk afskipti og myndi vafalaust sinna hlutverki sínu betur án þeirra. Hins vegar væri fróðlegt að vita hvort Framsóknarmenn telja RÚV vera eitthvert einsdæmi í þessum efnum.

Ferðamálaráð gaf t.d. tvær býsna mismunandi umsagnir um þingsályktunartillögu um lögformlegt mat á umhverfisáhrifum Fljótsdals-virkjunar með furðulega skömmu millibili. Í fyrra tilvikinu mælti það með samþykkt en í því síðara var málið svo flókið að ráðið treysti sér ekki til að taka afstöðu.

Það eina sem breyttist í millitíðinni var að tveir stjórnarþingmenn settust í Ferðamálaráð, þeir Jón Kristjánsson og Tómas Ingi Olrich. Nú er bara að sjá hvort Framsóknarmenn í yngri kantinum telja ástæðu til að skoða pólitísk afskipti í Ferðamálaráði og draga fram kústana á nýjan leik næst þegar þeir vilja komast í fréttirnar.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica