Fréttir

Sjálfsögð þægindi?

11.10.2001

Um þessar mundir dynja á almenningi auglýsingar Nýkaups þar sem hvatt er til þess að sala á áfengi í matvöruverslunum verði heimiluð. Er helst á málflutningi kaupmanna að skilja að fyrirkomulag smásöluverslunar á bjór og léttvíni skilji milli feigs og ófeigs þegar kemur að því að meta menningarstig einstakra þjóða. Þessi áróður hefur nú náð inn í sali Alþingis þar sem fimm þingmenn og varaþingmenn hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar, þar sem fjármálaráðherra yrði falið að láta kanna ??hvernig því verði best fyrir komið að létt vín og bjór verði fáanleg, hvort heldur er í sérverslunum með áfengi eða í matvöruverslunum.?
  
Ekki er að sjá af tillögunni eða greinargerðinni sem henni fylgir að þingmennirnir telji slíkar breytingar hafa nein vandkvæði í för með sér. Fer því vel á að benda þeim á grein eftir þrjár unglingsstúlkur á aldrinum 13 til 16 ára, sem birtist í Morgunblaðinu í dag, miðvikudaginn 10. nóvember. Þar sýna stúlkurnar, sem allar eru í langtímameðferð á unglingaheimilinu Varpholti við Akureyri fram á að málið er ekki eins einfalt og forsvarsmenn Nýkaups vilja vera láta.
  
Stúlkurnar þrjár benda á að í dag þurfi unglingar að bíða í 12 mánuði eftir því að komast í meðferð. Þær vísa til reynslu nágrannaþjóða sem bendir til að áfengisneysla myndi tvöfaldast með þessu fyrirkomulagi og spyrja hvort þjóðfélagið sé í stakk búið til að mæta því á sviði meðferðarúrræða. Þær velta því einnig upp hvort matvöru-kaupmenn vilji ekki fá að selja skotvopn líka enda hljóti slíkt að falla undir sjálfsögð þægindi.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica