Fréttir

Ráðherrann kemur upp í forstjóra

11.10.2001

Mál málanna í dag er Fljótsdalsvirkjun og allt sem henni við kemur. Á næstu dögum og vikum verður tekist á um málið innan þings sem utan. Ný grasrótarhreyfing hefur ráðist í söfnun undirskrifta til stuðnings kröfunni um að fram fari mat á umhverfisáhrifum virkjunarinnar með sama hætti og þegar aðrar nýjar framkvæmdir eiga í hlut. Söfnunin fer m.a. fram á heimasíðu Umhverfisvina.
  
Þar sem það væri líklega til þess að æra óstöðugan að birta hér enn eina greinina um rök fyrir þessari kröfu verður hér aðeins velt upp eftirfarandi spurningu: Er eðlilegt að forstjóri Landsvirkjunar segi Alþingi fyrir verkum og gefi því frest fram að jólum til að afgreiða þingsályktunartillögu iðnaðarráðherra um þessi mál?

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica