Fréttir

Vörður um hvað?

11.10.2001

Ungir sjálfstæðismenn á Akureyri láta ekki að sér hæða. Þeir hafa haft hægt um sig að undanförnu en eru nú komnir undan feldinum. Eftir ítarlegar vangaveltur hafa þeir komist að því að enginn geti verið Íslendingur nema standast tilskilið próf í íslensku. Þetta væru miklar fréttir í fræðaheiminum ef einhver þar tæki fullyrðingar íhaldsunganna alvarlega.
  
Í stjórnmálaumræðu verður hins vegar að taka Vörð, félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, alvarlega. Vörður er aðildarfélag ungliðasamtaka sem gjarnan státa sig af því að vera þau stærstu sinnar tegundar í landinu. Formaður Varðar kveðst tilbúinn að beita sér fyrir málinu innan flokksins, þ.e. að enginn fái íslenskan ríkisborgararétt nema ná grunnskólaprófi í íslensku. Að vísu byrjar kynning málsins ekki vel, formaður félagsins varð t.d. gersamlega klumsa þegar fréttamaður Ríkisútvarpsins spurði hvort honum fyndist þá að svipta ætti þá Íslendinga ríkisborgararétti sem ekki næðu slíku prófi. Eflaust verður það fljótlega gleymt, eflaust verður nafn formannsins fljótlega gleymt og eflaust verður honum hjálpað til að gleyma því að hann ætlaði að beita sér fyrir málinu innan Sjálfstæðisflokksins. En eftir stendur að yfirskrift ályktunar félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri var Ísland fyrir Íslendinga. Sú yfirskrift er andstyggileg.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica