Fréttir

WWF hvetur til lögformlegs mats á umhverfisáhrifum

11.10.2001

Framkvæmdastjórar World Wide Fund for Nature (WWF) í 14 Evrópulöndum hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna fyrirhugaðrar Fljótsdalsvirkjunar. Í yfirlýsingunni er lýst skilningi á því að virkjuninni sé ætlað að sjá nýju álveri fyrir raforku. Hins vegar sé í húfi víðerni sem ekki eigi sér hliðstæðu í Vestur-Evrópu hvað stærð og náttúrufegurð varðar. Þeir, sem undirrita yfirlýsinguna, telja afar mikilvægt að framkvæmt verði mat á umhverfisáhrifum virkjunarinnar. Þrátt fyrir að Landvirkjun hafi skilað skýrslu um málið sé brýnt að láta hlutlausa aðila fjalla um málið og skoða aðra kosti í orkuöflun, t.d. frá jarðhitavirkjunum.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica