Ánægjuleg skoðanakönnun
Vinstrihreyfingin - grænt framboð nýtur nú fylgis 18,9% kjósenda samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar félagsvísinda-stofnunar HÍ. Þetta er mesta fylgi sem hreyfingin hefur nokkru sinni mælst með og tvöfalt meira en í síðustu kosningum. Þegar litið er á sundurgreiningu könnunarinnar kemur í ljós að fylgið er mjög jafnt eftir landshlutum þannig að hreyfingin virðist standa traustum fótum á landsvísu.
Greinilegt er að í stefnu VG finna kjósendur samhljóm við sína afstöðu til mikilvægra mála og kunna að meta hversu skýra afstöðu hreyfingin tekur til meginspurninga í stjórnmálaumræðu samtímans. Í þessum niðurstöðum er einnig að finna vísbendingar um að almenningur styðji í mjög vaxandi mæli málflutning fulltrúa Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í einhverju stærsta deilumáli samtímans sem er framtíð öræfanna norðan og austan Vatnajökuls.

