Fréttir

Þegar kjósendur klikka

11.10.2001

Ísólfur Gylfi Pálmason ritar merkilega grein í DV í dag, 19. nóvember. Þar heldur hann áfram barningi leiðtoga síns, Halldórs Ásgrímssonar, við að upplýsa fólk um að VG sé á móti öllu. Og eins og aðrir Framsóknarmenn þessa dagana kvartar hann undan ómálefnalegum árásum á flokk sinn. Ísólfur er að sama skapi afar málefnalegur og veltir fyrir sér hvort VG þrífist á hinu fræga Rússagulli.
  
Halldór Ásgrímsson telur að Framsókn muni rétta úr kútnum þegar sannleikurinn komi í ljós í þeim erfiðu málum sem flokkur hans berst nú fyrir í þinginu. Hann álítur að VG fái sitt fylgi fyrir það eitt að vera á móti öllum málum, eins og hann hefur orðað það. Það eru sem sagt kjósendur sem eru að klikka. Ekki örlar á neinni hugsun um það að ef til vill séu einmitt margir kjósendur á móti þeim málum sem ríkisstjórnin, einkum Framsóknar-flokkurinn, hefur beitt sér fyrir. Hætt er við að á meðan Framsókn heldur áfram á sömu leið muni þessir sömu kjósendur alltaf verða á móti Framsókn en ekki á móti framtíðinni sem er dálítið annað mál.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica